Fréttir

15.4.2011

Breytingar áttu sér stað í starfsmannahaldi nú í apríl. Vigfús Þór Gunnarsson hætti störfum fyrir okkur, ákvað að breyta til. Við óskum honum velfarnaðar í framtíðinni um leið og við þökkum honum frábært samstarf. Einstakur félagi þar á ferð. Við starfi hans tekur Haukur Skæringsson.
Haukur er okkur að góðu kunnur, því hann var í 10 ár yfirmaður ábyrgðardeildar Heklu. Við hlökkum til samstarfs við hann og tökum vel á móti honum.

11.4.2011

Starfsmenn Bílson sóttu 2ja daga námskeið á vegum Heklu þar sem kynntar voru nýjungar í 2011 VW Passat og Touareg.

6.4.2011

Starfsmannafélag Bílson ( STABIL ) fór til New York í starfsmannaferð um daginn. Makarnir fóru með. Áttum frábæra ferð um Manhattan. Borðuðum góðan mat og nutum daganna. (Á myndina vantar Aron)

NY

8.12.2010

Þann 29-30. nóvember og 6-7 desember sóttu fjórir starfsmenn Bílson ehf námskeið í nýjungum frá Mitsubishi sem Hekla skipulagði. Farið var yfir nýjan bíl frá MMC sem kallast ASX, ný 1.8 lítra DI-D Mivec vél ásamt mörgum öðrum tækninýjungum frá MMC.

 

23.11.2010

Ný heimasíða tekin í gagnið fyrir Bílson ehf.